Um Njúton
Njúton er tónlistarhópur sem flytur nýja tónlist. Hópurinn hefur komið fram á fjölda tónleika á Íslandi; m.a. á Myrkum músíkdögum undanfarin ár og Norrænum tónlistardögum 2006, og farið í tónleikaferðir til Norðurlandanna og Bandaríkjanna. Á þeim tæpa áratug sem hópurinn hefur starfað hafa um 50 tónverk fæðst fyrir hans tilstilli en úrval þessara verka kom út á geisladisknum Roto con moto í lok árs 2007 á vegum Smekkleysu. Diskurinn var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2008 í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Listrænn stjórnandi hópsins er Berglind María Tómasdóttir.
njuton.com
Hafa samband:
njutonensemble (@) gmail.com
„…frábær tónlistarhópur sem á framtíðina fyrir sér og er það ósk mín að hópurinn fái svigrúm til að halda áfram því mikilvæga starfi sem hann hefur innt af hendi hingað til.”
Ólöf Helga Einarsdóttir - Morgunblaðið. Jan. 2007.