Tónleikar í Fríkirkjunni í Reykjavík 6. og 8. júní 2008

Þann 6. og 8. júní næstkomandi blása tónlistarhópurinn Njúton og útgáfufyrirtækið Bedroom Community til tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. Á efnisskrá verður íslensk og amerísk tónlist af ýmsum toga; allt frá amerískri þjóðlagatónlist til þarlendrar og hérlendrar samtímatónlistar. Á fyrri tónleikunum, föstudagskvöldið 6. júní kl. 21, flytur Njúton klassísk amerísk kammerverk frá 7. áratug síðustu aldar eftir tónskáldin George Crumb og Morton Feldman. Valgeir Sigurðsson og Sam Amidon, sem eru nýkomnir úr tónleikaferð um Evrópu, stíga jafnframt á stokk og flytja efni af nýlegum plötum sínum, Ekvílibríum og All Is Well, ásamt félögum úr Njúton. Á seinni tónleikunum, sunnudagskvöldið 8. júní kl. 20, verður minning tónskáldsins Stephen Lucky Mosko heiðruð. Mosko kom fyrst til Íslands snemma á 8. áratugnum, heillaðist af íslenskri tónlistarhefð og sótti innblástur í brunn hennar æ síðan. Hann kenndi um árabil við hinn víðfræga listaskóla California Institute of the Arts þar sem íslensku tónskáldin Hilmar Þórðarson og Kolbeinn Einarsson voru meðal nemenda hans. Á tónleikunum verður flutt stórvirki Moskos, Indigenous Music II, fyrir 11 manna hóp hljóðfæraleikara. Verkið var skrifað fyrir tónlistarhópinn California EAR Unit árið 1984 og í því er að finna margvíslegar tilvísanir í tónlist innfæddra; m.a. ber síðasti kaflinn heiti hollenska gullskipsins (Het Wapen van Amsterdam) sem sökk úti fyrir ströndum Íslands á 17. öld. Á tónleikunum verða jafnframt leikin verk eftir Hilmar Þórðarson, Kolbein Einarsson og Atla Heimi Sveinsson. Þeim Atla og Mosko var vel til vina og skrifaði Atli verkið Fluff and Drama, sem Njúton flytur á tónleikunum, fyrir tónlistarhópinn California EAR Unit en Mosko tengdist hópnum sterkum böndum.

Nánari efnisskrá:

Föstudagur 6. júní kl. 21 Njúton og Bedroom Community Njúton:- 11 Echoes of Autumn eftir George Crumb fyrir flautu, klarinett, fiðlu, píanó—-Valgeir Sigurðsson—–Njúton:- Durations 1 eftir Morton Feldman fyrir flautu, fiðlu, selló, píanó—–Sam Amidon

Sunnudagur 8. júní kl. 20 Njúton – Indigenous Music Atli Heimir Sveinsson: Fluff and Drama* (endurskoðuð útgáfa) – FRUMFLUTNINGUR fyrir kammerhóp——Kolbeinn Einarsson: 18v – FRUMFLUTNINGUR fyrir flautu og píanó—–Hilmar Þórðarson: Sononymus fyrir píanó og tölvu – Meitlað í stein—–Stephen Lucky Mosko: Indigenous Music II* fyrir kammerhóp

*Stjórnandi: Úlfar Ingi Haraldsson