Útgáfuteiti
Fyrsta plata tónlistarhópsins Njúton er komin út á vegum Smekkleysu. Platan heitir Roto con moto og inniheldur níu verk eftir sjö tónskáld. Öll verkin á plötunni eru samin fyrir Atonal Future/Atónal-hópinn/Atón/Aton á árunum 1999-2006. Upptökur fóru fram í Gróðurhúsinu undir stjórn Valgeirs Sigurðssonar fyrr á þessu ári.
Föstudaginn 7. desember næstkomandi verður útgáfu plötunnar fagnað í Smekkleysubúðinni við Laugaveg milli klukkan 17 og 19. Þar verður platan til sölu á sérstöku kynningarverði og boðið verður upp á léttar veigar.
Allir velkomnir.
