Vortex Temporum í Óperunni 4. júní
May 13th, 2010Njúton kemur fram á Listahátíð í Reykjavík þann 4. júní 2010 ásamt the Formalist Quartet og flytur Vortex Temporum eftir Gérard Grisey ásamt fleiri verkum.
Íslenski tónlistarhópurinn Njúton og bandaríski strengjakvartettinn The Formalist Quartet leiða saman hesta sína og frumflytja á Íslandi eitt af stórvirkjum tónlistarsögu 20. aldar; Vortex Temporum eftir franska tónskáldið Gérard Grisey. Tónlist Grisey hefur lítið hljómað á Íslandi en hann er eitt af höfuðskáldum svokallaðrar spektraltónlistar. Á tónleikunum verður jafnframt frumflutt nýtt verk eftir Atla Ingólfsson, innblásið af einum af hans lærifeðrum, einmitt Gérard Grisey. Einnig verða tveir strengjakvartettar eftir Úlfar Inga Haraldsson og Nicholas Deyoe fluttir á tónleikunum.




